ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka hf.
Forseti. Salan á Íslandsbanka hefur verið eitt af lykilmálum þessarar stjórnar frá árinu 2017. Það tókst mjög vel upp í fyrri sölunni. Við fengum gott verð, mjög dreift eignarhald. Það var ýmislegt sem hefði mátt betur fara í seinni sölunni en við fengum samt sem áður mjög hátt verð, eða hvar eru nú allir snillingarnir sem sögðu þá að bankinn væri augljóslega seldur á miklu undirverði þegar borið er saman við verð bankans eins og það stendur í dag, sem er um 20% lægra heldur en verðið sem fékkst í síðustu sölu bankans? Við treystum okkur til þess að halda áfram á þessum grundvelli ef við fáum umboð til að halda áfram sölu bankans og bjóðum fram fullt samráð við stjórnarandstöðuna ef hún treystir sér í það samtal. Við höfum engan áhuga á öðru en að leggja góðan grunn að næstu skrefum í sölu bankans vegna þess að við vitum að með því að losa áfram um eignarhald ríkisins í þessum banka þá munum við geta nýtt fjármunina betur til annarra verkefna, til að létta á skuldastöðu, já, og til að byggja upp innviði, já.