154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka hf.

920. mál
[10:41]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Er það ekki dæmalaust að það virðist ekki vera hægt að greiða fyrir innviði og annað slíkt með arði af eignum, sameiginlegum eignum þjóðarinnar, arði sem mun vera hátt í 50 milljarðar á árinu 2024 ef við tökum mark á fyrsta ársfjórðungi þar sem hreinn hagnaður Íslandsbanka var 5,4 milljarðar kr.? Í fyrra var hagnaður bankans tæpir 5 milljarðar kr. Er það ekki merkilegt að þetta samfélag skuli alltaf vera nógu gott til að hirða upp duft og rusl sem í rauninni eru gjaldfallnir bankar eftir bankahrunið 2008? Síðan eiga skattgreiðendur að byggja allan kastalann upp og nú á að einkavæða hann. Við í Flokki fólksins erum ekki hrifin af því hvernig farið er með almenning í þessu landi, hvernig við erum fótumtroðin ítrekað þar sem hagnaðurinn okkar er einkavæddur á meðan við erum nógu góð til að reisa við tapið.