154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka hf.

920. mál
[10:43]
Horfa

Halldóra Mogensen (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Mér finnst þetta mál einhvern veginn vera merki um algjöra firru þessarar ríkisstjórnar, að það eigi í alvörunni að fara að gera þetta. Á í alvörunni að halda áfram að selja bankann sem búið er að klúðra svo gríðarlega í fyrri sölum og grafa undan öllu trausti? Þetta lýsir svo miklu skeytingarleysi gagnvart trausti almennings til stjórnvalda, til fjármálakerfisins, til lýðræðisins. Mér þykir þetta svo vond niðurstaða, að það eigi að halda áfram án þess að það sé einu sinni búið að ljúka rannsókninni á fyrra klúðri. En fólki er alveg sama og ég held að það sé bara eitthvert tengslaleysi við afleiðingarnar sem það hefur þegar farið er í þessa vegferð í algjöru skeytingarleysi gagnvart trausti almennings til vegferðarinnar. Þetta sýnir almenningi að ríkisstjórninni er bara slétt sama að þjóðin treysti þeim ekki. Þau ætla bara samt að gera þetta.