ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka hf.
Herra forseti. Að sjálfsögðu er ég að óska eftir því að þessu máli verði vísað frá. Að sjálfsögðu er ég að verja hag almennings og íslensks samfélags með því að vilja vísa þessu máli frá. En í því felst þó ákveðinn ómöguleiki vegna þess að þessi ríkisstjórn hefur þegar gert ráð fyrir því að vera búin að selja Íslandsbanka og það kom fram í fjárlögunum í desember síðastliðnum. Svo var náttúrlega líka gert ráð fyrir peningunum fyrir Íslandsbanka í þessari fjármálaáætlun sem við erum nýbúin að greiða atkvæði um. Ég býst við því að þeir sem koma hér upp og treysta ekki þessari ríkisstjórn til að vinna verkið muni líka greiða með mér atkvæði um það að vísa þessu máli frá.