154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka hf.

920. mál
[10:51]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Breytingartillagan er um það sem eðlilegt er, að ráðherra þurfi að gæta að hæfi sínu við sölu á eigum almennings. Þessari ríkisstjórn er ekki treystandi til að selja banka. Það hefur sýnt sig. Þetta frumvarp gerir ekkert til að breyta því, heldur þvert á móti. Fjármálaráðherra er fært mikið vald með frumvarpinu. Hann ræður hversu mikið er selt án þess að hlutverk ráðherrans og ábyrgð sé skýr og í ofanálag þarf hann ekki að gæta að hæfi sínu. Sérstöku hæfisreglurnar eru brjóstvörn málefnalegrar stjórnsýslu. Þeim er ætlað að stuðla að því að almenningur geti treyst því að stjórnvöld leysi úr málum á hlutlægan hátt. Að taka hæfisreglurnar úr sambandi við sölu á eigum almennings er hneyksli og með því er verið að gefa umboðsmanni Alþingis puttann og almenningi líka. Ég segi já. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)