154. löggjafarþing — 130. fundur, 22. júní 2024.
veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.
521. mál
Virðulegi forseti. Hér erum við að fara að greiða atkvæði um eina þingmannamálið sem fær að komast í gegnum nálarauga þessa þings. Hér er ekki um ríkisstjórnarfrumvarp að ræða heldur frumvarp lagt fram af einstaka þingmönnum úr atvinnuveganefnd, frumvarp sem fyrir löngu ætti að vera búið að stoppa en einhverra hluta vegna fá þessir ákveðnu þingmenn að koma hér með þingmannafrumvarp í lokasamningum á meðan öll önnur og mun betri þingmannafrumvörp hafa ekki einu sinni fengið afgreiðslu úr nefnd.