154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.

521. mál
[10:56]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Þetta mál er með hreinum ólíkindum. Það eru engin verndarrök fyrir kvótasetningu á grásleppu, ekki nokkur, engin, engin, engin. Ástæðan fyrir því að við erum með kvótasetningu á grásleppu er vegna vísindalegrar ráðgjafar Hafrannsóknastofnunar. Í 40 ár höfum við byggt á því að vernda fiskstofna við landið með kvótasetningu. Hér er verið að þjóna sérstökum hagsmunum einstaklinga en ekki verið að hugsa um heildarhagsmuni. Það eru engir almannahagsmunir. Þetta sýnir líka stöðu Vinstri grænna innan þessarar ríkisstjórnar. Þetta er ekki frumvarp hæstv. matvælaráðherra sem kemur frá Vinstrihreyfingunni – grænu framboði. Hvar eru þeir í þessari ríkisstjórn? Þeir eru ekki til. Ráðherrann treystir sér ekki til að leggja þetta frumvarp fram og þetta er nefndarfrumvarp frá þingmönnum Sjálfstæðismanna og Framsóknarflokksins í atvinnuveganefnd. Vinstri grænir eru ekki til í þessu máli. Þeir eru ekki til í þessari ríkisstjórn, þessi sósíalíska, róttæka, femíniska og (Forseti hringir.) guð má vita hvað stjórnmálahreyfing sem er dauð. (Forseti hringir.) Hún er dauð, dauð, dauð. Og það er með ólíkindum (Gripið fram í.) að samþykkja þetta.