154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.

521. mál
[10:57]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Þetta mál snýst um kvótasetningu þar sem verið er að færa veiðar á grásleppu inn í núverandi kvótakerfi með þeim kostum og göllum sem því kerfi fylgja. Málið var lagt fram af fyrrverandi matvælaráðherra Vinstri grænna á síðasta þingi en einnig stutt þá af núverandi matvælaráðherra sama flokks. Hér er það hins vegar lagt fram af meiri hluta atvinnuveganefndar og í umræðu um málið hér seint í gærkvöldi, í kringum miðnætti, kemur fram í máli hæstv. þingmanns Vinstri grænna, Bjarna Jónssonar, að málið fari að öllu leyti gegn þeim flokki sem lagði það þó fyrst fram. Í Viðreisn höfum við verið mjög skýr í okkar afstöðu til verndar og nýtingar á auðlindum og í afstöðu okkar til núverandi kerfis og þó að það hafi gagnast að mörgu leyti vel þarfnast það heildarendurskoðunar ásamt því að farið verði í löngu tímabæra endurskoðun á auðlindaákvæði stjórnarskrár. Ótímabundið framsal á auðlindum þjóðarinnar er eitthvað sem heyrir fortíðinni til í íslensku samfélagi. Þegar því til viðbótar kemur það sem ekki er hægt að kalla annað en farsakenndan aðdraganda afgreiðslu þessa máls, nokkuð sem ber þess öll merki að hér sé verið að hugsa um hagsmuni fárra á kostnað hagsmuna heildarinnar, (Forseti hringir.) þá er afstaða Viðreisnar sú að greiða atkvæði gegn málinu.