154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.

521. mál
[10:58]
Horfa

Bjarni Jónsson (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég styð ekki frumvarpið eins og það liggur fyrir. Það er í mótun breytingartillaga sem er til þess fallin að gera málið betra og mun hún koma fram fyrir 3. umræðu. Því sit ég hjá við fyrirliggjandi breytingartillögu. Enn fremur munu aðrir í þingflokki VG sitja hjá við lok þessarar atkvæðagreiðslu við 2. umræðu vegna boðaðrar breytingartillögu.