veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.
Herra forseti. Flokkur fólksins barðist eins og hann gat gegn því að þessi staða myndi koma upp um enn frekari kvótasetningu á sjávarauðlindinni okkar. En því miður má enginn við margnum og það virðist vera sem svo að það séu fáir aðilar hér inni á Alþingi Íslendinga, fáir flokkar sem eru eins öflugir andstæðingar frekari kvótasetningar og Flokkur fólksins. Við í Flokki fólksins höfum ötullega og ítrekað bent á þá sorgarstöðu sem kvótasetning og framsal hefur haft á sjávarbyggðir landsins en nú eina ferðina enn erum við að fara að kvótasetja og nú skal það vera grásleppan. Ég spyr bara, herra forseti: Hvað verður það næst? Ég sé lítið eftir í hafinu sem á eftir að kvótasetja nema kannski það sem kemur frá klóakkerfinu.