154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.

521. mál
[11:00]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Grásleppa er ekki ofveidd við Íslandsstrendur. Grásleppustofninn er ekki í hættu og það eru engin knýjandi verndar- eða sjálfbærnirök eða önnur vísindarök á bak við það að kvótasetja hana. Svona lagasetning getur haft mjög afgerandi áhrif á þróun mála í einstökum byggðarlögum, ýmist til góðs eða ills, og þá er það lágmarkskrafa að hún sé rýnd mjög rækilega út frá sjónarmiðum um atvinnufrelsi, um tækifæri til nýliðunar og út frá byggðasjónarmiðum. Ekkert slíkt heildarmat hefur farið fram. Málið er vanreifað og hér er uppi sú skringilega staða að verið er að keyra í gegn stórt mál um fiskveiðistjórn á Íslandi sem sá flokkur sem fer með sjávarútvegsmál í ríkisstjórn treystir sér ekki til að taka ábyrgð á. Við í Samfylkingu getum ekki stutt þessi vinnubrögð við lagasetningu og við greiðum atkvæði gegn málinu.