154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.

521. mál
[11:03]
Horfa

utanríkisráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Ég fagna því að við séum komin á þennan stað með þetta mál. Það hefur verið mikil gagnrýni á veiðistjórn grásleppu undanfarin ár og einkum á það að hún hafi verið ómarkviss og ófyrirsjáanleg og m.a. snúið að því að fylgja ráðgjöf Hafró og ýtt undir kapphlaup þannig að jafnvel sé veitt þótt veður sé slæmt eða meðafli mikill. Það er ókostur gildandi veiðistjórnar að þeir sem stunda veiðarnar vita ekki í byrjun vertíðar hversu marga daga þeir geta veitt. Um þetta hefur verið nokkuð breið samstaða, m.a. af hálfu þeirra sem hafa stundað veiðarnar, en þó ekki alger. Það er ábyrgðarhluti að bregðast við þessari stöðu og koma á skilvirkari og einfaldari veiðistjórn. Það er ljóst að það verður best tryggt með því að hlutdeildarsetja grásleppuna. Í frumvarpinu eins og það liggur fyrir hefur verið tekið tillit til hins sérstaka eðlis þessara veiða, m.a. varðandi hámarkshlutdeild og afléttingu veiðiskyldu. Það er mér þess vegna ljúft og skylt að styðja þessa tímabæru breytingu.