veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Ég hef setið fundi atvinnuveganefndar núna í vetur og það hafa margir komið og rætt þetta kvótafrumvarp, með og á móti, og ég viðurkenni það að í hvert skipti sem gestir fara þá er ég alltaf sammála síðasta ræðumanni. Þannig að ég er svolítið óviss. Hv. formaður nefndarinnar, Þórarinn Ingi Pétursson, talaði í gær um það að sjómenn þyrftu fyrirsjáanleika. Ég er búinn að vera í viðskiptum í yfir 50 ár og það er enginn fyrirsjáanleiki í viðskiptum. Maður tekur bara sénsinn og það er þannig líka með þetta. Ég vil geta þess að á árunum 1602–1787 var hér svokölluð einokunarverslun og það að fara í kvóta er ekkert annað heldur en að setja þetta í einokun og það viljum við ekki á Íslandi. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)