154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.

521. mál
[11:11]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Svo það liggi fyrir þá hefði auðveldlega verið hægt að breyta núverandi fyrirkomulagi og reglum til að koma til móts við alla í þessu kerfi, m.a. veiðimenn í Stykkishólmi og í Breiðafirði. Breytingartillaga þessi er einföld. Hún er eftirfarandi:

„Óheimilt er að framselja eða leigja aflahlutdeild í grásleppu. Ef útgerð viðkomandi skips ætlar ekki að nýta aflahlutdeild skal aflahlutdeild skipsins endurúthlutað til annars skips.“

Það eru engin rök fyrir því að heimila framsal í þessu kerfi. Það er engin hagræðingarrök hér á bak við. Það eru engin rök fyrir samþjöppun eða neitt svoleiðis. Löggjafinn er bara að búa til kvóta sem hann ætlar að leyfa einstaklingum að selja annað til að fá pening. Það eru einu rökin. Það er ekkert annað. Það er verið að gera greiða einstaklingum sem fá kvóta. Rökin á bak við þetta, almennu rökin fyrir framsali eru engin innan svæðisins, ekki nokkur einustu. Og ég skora á þingmeirihlutann að skoða það atriði.