fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.
Virðulegi forseti. Hámark fæðingarorlofsgreiðslna hefur aldrei á þessari öld verið lægra í hlutfalli við launavísitölu heldur en árið 2023. Ef þakið hefði haldið verðgildi sínu frá því að gerðar voru breytingar á kerfinu árið 2019 þá væri það nú þegar hærra heldur en 800.000 kr. á mánuði. Við í Samfylkingunni leggjum til, ásamt Pírötum, að þakið hækki strax upp í þá fjárhæð. Auk þess leggjum við til að hækkanirnar taki til allra foreldra sem eru í fæðingarorlofi. Þetta er rökstutt kirfilega í nefndaráliti minni hluta. Við leggjum til að bundið verði í lög að frá og með árinu 2026 fylgi þakið launaþróun. Loks erum við með breytingartillögu sem snýst um að tryggja betur rétt foreldra sem glíma við veikindi í tengslum við meðgöngu. Ég mun gera betur grein fyrir henni í atkvæðaskýringu hér á eftir.