154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.

910. mál
[11:16]
Horfa

Berglind Ósk Guðmundsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Þetta er gríðarlega jákvætt og gott mál. Ég ætla að fagna því að við séum að ganga til atkvæðagreiðslu um þetta mikilvæga mál sem fjallar um helmingshækkun á þaki á greiðslum í fæðingarorlofi til foreldra. Þetta hefur verið baráttumál Sjálfstæðisflokksins í mörg ár. Það er því ánægjulegt að við séum að taka þessa góðu breytingu til atkvæða í dag. Ég ætla að fá að lýsa yfir ánægju minni með að nefndin hafi gert sanngjarnar og eðlilegar breytingar á málinu. Hér er ríkisstjórnin að styðja við ungar barnafjölskyldur, sem er virkilega gott. Ég tel boltann vera núna hjá sveitarstjórnarstiginu að tryggja viðeigandi dagvistunarúrræði til að styðja enn betur við ungar barnafjölskyldur. Þetta er frábært mál. Ég vona að sem flestir verði á grænu því að ekki er vanþörf á því að styðja vel við ungt barnafólk — og kannski mögulega hækka fæðingatíðni í leiðinni. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)