154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.

910. mál
[11:18]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. 1. janúar árið 2021 lengdi þessi ríkisstjórn fæðingarorlofið. Það var mikilvægt. Það var gott. Hér er verið að stíga þau skref að hækka í áföngum þakið í greiðslum í fæðingarorlofi. Það er annað gríðarlega mikilvægt skref sem verið er að taka og kemur til með að styðja við ungbarnafjölskyldur í landinu. Við í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði styðjum breytingartillögur meiri hlutans á þessu máli enda teljum við að þar sé bæði verið að stíga mikilvæg skref í því að hækka þakið, eins og löngu er orðið tímabært, en einnig að styðja við kjarasamninga sem nýlega hafa verið gerðir. Það er ekki síður mikilvægt.