fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.
Virðulegi forseti. Það er okkur í Framsókn sérstakt ánægjuefni að standa enn og aftur að umbótum á fæðingar- og foreldraorlofi. Við styðjum þetta frumvarp og fögnum þeim breytingum sem það felur í sér, ásamt breytingartillögu meiri hluta. Frumvarpið felur í sér hækkun hámarksgreiðslu úr 600.000 kr. í 900.000 kr. í þremur áföngum. Breytingartillagan felur í sér hækkun hámarksgreiðslna í 700.000 kr. í ár og að sú breyting eigi við um alla foreldra sem eiga rétt til greiðslna eftir 1. apríl 2024. Þetta er mikilvægur liður við að ná markmiðum um samvist barna og foreldra og samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs. Ég vil halda því til haga að það er verkefni sem við þurfum stöðugt að hafa augun á og það höfum við og munum gera áfram í Framsókn.