154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.

910. mál
[11:27]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Ég get ekki orða bundist. Hér kemur hver þingmaðurinn á fætur öðrum upp og þakkar sér og sínum flokki þessar miklu framfarir. Það er ágætt, við skulum vera ánægð með það, en við skulum setja þakkirnar þar sem þær eiga að vera. Við skulum þakka íslenskri kvennahreyfingu fyrir að hafa barist fyrir jafnrétti áratugum saman, við skulum þakka rauðsokkunum, við skulum þakka Kvennalistanum, við skulum þakka kvenfélögunum, við skulum þakka kvennahreyfingum allra stjórnmálaflokka fyrir að færa foreldrum þau sjálfsögðu réttindi, vonum seinna, að geta tekið fæðingarorlof og það setji þau ekki á hausinn. Og gleymum því ekki að í þessari breytingu endurspeglast launamunur kynjanna á Íslandi, vegna þess að það eru launin, það eru efnahagsaðstæður fólks sem stjórna því hvort þau geti valið, hv. þm. Bergþór Ólason, hvort þau séu heima hjá börnunum sínum eða ekki. Það er samfélagið sem býr til skilyrðin fyrir fæðingarorlofi. Vonum seinna hækkum við þakið sem verkalýðshreyfingin hefur reynt að semja um í a.m.k. heilan áratug. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)