154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.

910. mál
[11:32]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Frú forseti. Hér rétt í þessu var breytingartillaga okkar í minni hlutanum felld um að hækkun taki til allra foreldra sem eru í fæðingarorlofi. Þegar hækkanir taka gildi á örorkulífeyri eða greiðslum úr Atvinnuleysistryggingasjóði þá ná þær til allra sem eiga rétt á þeim greiðslum og við teljum að það sama eigi að gilda um ungbarnaforeldra og færum rök fyrir þessu í nefndaráliti. Þrátt fyrir að tillagan okkar hafa verið felld þá munum við vera græn á tillögu meiri hlutans. Þetta er skref í rétta átt þótt við hefðum viljað annað viðmið. Þannig að við verðum græn á eigin breytingartillögum en svo ef svo ólíklega vill til að allar okkar breytingartillögur verði felldar þá verðum við samt græn á breytingartillögum nefndarinnar og málinu í heild.