þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta.
Virðulegur forseti. Hér er mjög sérstakt mál á ferðinni, áratugaárásir ríkisins á hendur landeigendum í landinu. Ég vek athygli á bara nafni málsins: Þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta. Það sem átti að gera í þessum málum var að afmarka mörk eignarlanda og almenninga. Það var ekki gert. Fjármálaráðherrar undanfarinna áratuga hafa farið í það verk að reyna að finna nýja almenninga með árásum á landeigendur áratugum saman í algerlega gölnum kröfugerðum og núna hefur hæstv. fjármálaráðherra frest til 2. september til að breyta kröfugerð sinni sem er í dag frá stórstraumsfjöruborði til ytri marka landhelginnar. Þetta frumvarp kveður á um að leggja niður óbyggðanefnd 1. janúar 2026. Ég veðja á að óbyggðanefnd verði ekki búin með störfin í lok næsta árs. Þetta er það viðamikið mál. Ég mun koma aftur í ræðustól og segja: Ég sagði ykkur það — svo að það liggi fyrir.
Annað sem verið er að keyra í gegn svo að við náum örugglega að hætta þessu máli fyrir 1. janúar 2026 er að meta (Forseti hringir.) auglýsingaskyldu ríkisins, fjármálaráðherra gagnvart Búrfellslundi. (Forseti hringir.) Það er ekki auglýsingaskylda á vindmyllulundum í Búrfellslundi. (Forseti hringir.) Þetta er öryggissvæði Landsvirkjunar. Að sjálfsögðu á þriðji aðili ekki að fara inn á öryggissvæði Landsvirkjunar og reisa vindmyllur. (Forseti hringir.) Það skapar skaðabótaskyldu o.s.frv.