154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta.

737. mál
[11:51]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Hér erum við að fara að greiða atkvæði um breytingu á þjóðlendulögum. Mig langar í rauninni aðeins að fara yfir það hvernig forsendur hafa breyst verulega varðandi málsmeðferð óbyggðanefndar á eyjum og skerjum frá því að sú breytingartillaga sem nú hefur verið dregin til baka var lögð fram hér í þinginu. Um þetta er fjallað nánar í nefndaráliti meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar en fjármála- og efnahagsráðherra, sem hefur forræði á kröfugerð ríkisins, brást við athugasemdum sem komu víða að og lýsti því yfir að kröfugerð á svæðinu yrði tekin til ítarlegrar endurskoðunar. Sú endurskoðun stendur yfir. Í þeirri vinnu á að skýra kröfu ríkisins eins og kostur er og það á að fækka ágreiningssvæðum og einfalda málsmeðferðina fyrir alla þessa aðila. Í nefndaráliti meiri hluta er lögð áhersla á að þetta gangi eftir og er farið nánar yfir það.