þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta.
Virðulegur forseti. Ég vil fyrst óska hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni til hamingju með að vera fyrstur þingmanna til að lýsa yfir framboði fyrir næstu kosningar. Hann ætlar að standa hér í pontu árið 2026 og segja: Ég sagði ykkur þetta.
En bara til áréttingar, í ljósi orða hv. þm. Líneikar Önnu Sævarsdóttur, þá gengur breytingartillagan út á það að taka þennan kaleik frá hæstv. fjármálaráðherra. Það er alger óþarfi að fara í gegnum þessa vinnu og eyða tíma og skattfé í að endurskilgreina þessar kröfur. Fellum þær bara niður. Fellum niður þessar kröfur sem varða eyjar, hólma og sker landið um kring. Þetta kom inn í breytingunni sem var gerð 2020, er grundvallað á henni. Þetta er alger óþarfi. Þetta er ekki í neinu samhengi við upphafleg markmið þessara laga og við eigum bara að segja hæstv. ráðherra að stoppa þessa vinnu og hætta að eyða tíma í þessa vitleysu. Það verður ekkert tilkall til eyja og hólma landið um kring, það er það sem verður lagt til í breytingartillögunni sem kemur fram hér fyrir 3. umræðu. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)