154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[12:00]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Stjórnarmeirihlutinn kom í gegn breytingartillögu sem fól í rauninni í sér hættu á að ganga á rétt neytenda. Það er miður og við í stjórnarandstöðunni, þar með talið Viðreisn, greiddum atkvæði gegn breytingartillögu meiri hlutans. Eftir stendur mál sem skiptir þjóðaröryggi miklu máli og á þeim forsendum styðjum við í Viðreisn þetta mál.