154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

sjúkraskrár.

906. mál
[12:03]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Við greiðum hér atkvæði um breytingu á lögum um sjúkraskrár, umsýsluumboð. Ég vil þakka hv. velferðarnefnd fyrir góða vinnu við að klára þetta mikilvæga réttindamál og tek undir með nefndinni um mikilvægi þess að halda áfram á þessari braut, að leita áfram leiða til sannvottunar, auðkenningar og innskráningar sem hentar breiðari hóp og uppfyllir öryggiskröfur. Hér er einungis varða á leið. Með þessari umsýsluumboðslausn erum við að opna fyrir aðgengi fyrir þann hóp sem hefur ekki tök á að nýta sér rafræn skilríki milliliðalaust. Ég tek einnig heils hugar þeim tilmælum að fylgja eftir og tryggja aðgengi einstaklinga að sérfræðilæknum og vakta sérstaklega í því samhengi jafnt aðgengi óháð búsetu.