154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

Mannréttindastofnun Íslands.

239. mál
[12:04]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég vil bara halda til haga þeim sjónarmiðum okkar í þingflokki Miðflokksins að það hefði verið hægt að ná fram þeim markmiðum sem ætlunin er að ná með þessu frumvarpi og þessari nýju ríkisstofnun með mun haganlegri hætti en hér er lagt til. Afstaða okkar, að leggjast gegn þessu máli, hefur ekkert með afstöðu okkar til mannréttinda að gera heldur það að stofnanavæðingin í þessum efnum er gengin úr hófi fram. Það er óþarfi að gera þetta með þessum hætti og það hefði farið betur á því að fara aðrar leiðir. Þingflokkur Miðflokksins greiðir áfram atkvæði gegn málinu.