154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

Mannréttindastofnun Íslands.

239. mál
[12:05]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Nú greiðum við atkvæði um mikilvægt mál. Það er afar gleðilegt að finna það á svona dögum þegar við náum mjög góðri samstöðu um mál. Ég vil nota tækifærið, þótt ég hafi ekki orðið þeirrar gæfu aðnjótandi nema að takmörkuðu leyti að sitja í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd við meðferð málsins, og þakka nefndinni fyrir sína vinnu við málið. Þetta eru ákveðin tímamót. Ég ætla að leyfa mér að vera ósammála og veit að félagar mínir í þingflokki Vinstri grænna eru ósammála hv. þm. Bergþóri Ólasyni um að hér eigi stofnanavæðingin ekki við, eins og hv. þingmaður orðaði það. Ef það er einhvern tímann þörf á sterkri mannréttindastofnun sem sérstakri stofnun og sjálfstæðri undir Alþingi þá er það akkúrat nú þegar við eigum í vök að verjast með tilliti til mannréttinda og mannréttindabaráttu um allan heim. Við stöndum ágætlega á Íslandi en þetta er barátta sem aldrei linnir. Nú höfum við tæki til þess að standa að því og ég greiði glaður atkvæði með þessu máli hér í dag. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)