154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

fullnusta refsinga.

928. mál
[12:09]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka nefndinni fyrir hennar vinnu í þessu mikilvæga máli. Einnig vil ég fá að árétta það í ljósi umræðunnar sem varð um þetta mál í þinginu í gær að þetta er framlenging á bráðabirgðalögum sem sett voru 2021 og renna sitt skeið á enda 1. júlí að öllu óbreyttu. Þau voru sett með það að markmiði að stytta boðunarlista Fangelsismálastofnunar en það er vegna þess m.a. að það hafa verið framkvæmdir í fangelsum landsins, sérstaklega á Litla-Hrauni, og loka hefur þurft klefum. Það hefur því þurft að bregðast við ástandinu með m.a. þessum hætti. Ég vil einnig fá að árétta að dómsmálaráðuneytið hefur hafið heildarendurskoðun á málaflokknum sem verður unnin í breiðu samstarfi núna á næstu mánuðum. Ég vænti grænbókar 1. október og hvítbókar 1. nóvember.