154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

fullnusta refsinga.

928. mál
[12:10]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Þingflokkur Viðreisnar situr hjá í þessu máli. Staðan í fangelsismálum held ég að sé öllum í þessum sal ljós og hún stafar af einni breytu og aðeins einni breytu, vanfjármögnun sem hefur staðið yfir um margra ára skeið. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar er rakinn tíu ára kafli fyrninga. Við erum á þeim stað í íslenskri refsipólitík að nú er verið að leggja til, vegna blankheita fangelsa landsins, að dómar allt upp í 24 mánaða langir fari í samfélagsþjónustu. Það er algengur dómur bara fyrir kynferðisbrot, fyrir nauðganir, fyrir alvarleg afbrot í öllu tilliti málsins. Samfélagsþjónusta, eins og ég áréttaði hér í gær, er gott úrræði, brýnt úrræði, dómstólar ættu að geta beitt því. En það er ekki ástæðan að baki þessari breytingu hér í dag. Það er verið að stytta boðunarlista með því að virða að vettugi vilja dómstóla í alvarlegum sakamálum. Engin önnur ástæða.