154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

fullnusta refsinga.

928. mál
[12:12]
Horfa

Halldóra Mogensen (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Við Píratar erum reyndar líka á gulu á þessu máli. Þetta snýst um að framlengja bráðabirgðaákvæði sem leyfir að hægt sé að nota samfélagsþjónustu og reynslulausn sem úrræði í fangelsiskerfinu. Það sem okkur þykir miður er að verið sé að framlengja þetta bráðabirgðaákvæði eftir þrjú ár sem dómsmálaráðuneytið hefur haft til að fara í þessa vinnu, þessa heildarskoðun á fangelsiskerfinu og að fjármagna það líka almennilega. Staðan er ekki góð og það er eiginlega bara óafsakanlegt að þessum málaflokki skuli hafa verið leyft að sitja á hakanum í svona ótrúlega langan tíma. Þótt ég sé sannarlega glöð að heyra að hæstv. dómsmálaráðherra sé að taka á þessu núna þá er þetta bara aðeins of lítið, aðeins of seint. Það hefði þurft að vera búið að þessu og það er miður að við séum ekki núna að afgreiða heildarlög í þessum málaflokki og reisa við fangelsin og fjármagna þau almennilega og tryggja að hér sé betrunarstefna frekar heldur en refsistefna í fangelsiskerfinu. (Forseti hringir.) Í staðinn erum við að framlengja þetta bráðabirgðaákvæði. Þannig að við sitjum hjá í þessari atkvæðagreiðslu.