154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

fullnusta refsinga.

928. mál
[12:14]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Hér er um að ræða mikilvægt úrræði sem hefur reynst alveg ofboðslega vel. Fangelsismálastofnun kom á fund okkar í allsherjar- og menntamálanefnd og fór yfir framkvæmdina og það er alveg ljóst að það er mikilvægt að hafa þetta úrræði. Þess vegna er ég hissa að það séu ekki fleiri á græna takkanum hér í dag. En ég segi já.