Menntasjóður námsmanna.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. allsherjar- og menntamálanefnd fyrir vinnu þessa frumvarps. Það var mikil umræða um menntasjóðskerfið í heild sinni sem þarf áfram að taka breytingum. Það er rétt að komin er reynsla á heildarendurskoðun síðasta kjörtímabils núna og það er ljóst að það þarf áfram að gera mikilvægar breytingar á kerfinu, sem unnið er að í háskólaráðuneytinu. Hér erum við samt að stíga mikilvægt skref. Við erum að afnema ábyrgðarmannakerfi námslána að fullu, sem er sanngjarnt og réttlætanlegt enda stendur lögmannskostnaður ekki undir innheimtu á þessum lánum hjá ábyrgðarmönnum, ásamt því að við erum að auka sveigjanleika námsstyrks.