154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

tekjustofnar sveitarfélaga.

1114. mál
[12:19]
Horfa

innviðaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Hér greiðum við atkvæði um mikilvægt mál sem er hluti af umbúnaði kjarasamninga en ekki síður baráttumál vinstra fólks um árabil, þar með talið okkar í VG, einnig stórt og mikilvægt skref í því skyni að jafna kjör barna og vinna gegn fátækt í samfélaginu. Hér verður breyting á grundvallarþætti í starfsemi grunnskólanna okkar þar sem ómetanlegt jöfnunarhlutverk skólastigsins er styrkt enn frekar. Skólabragur og lýðheilsa barna nýtur góðs af. Ég vil þakka hv. velferðarnefnd fyrir vandaða vinnu og sérstaklega framsögumanni málsins. Þáttaskilin eru raunveruleg. Þetta er eitt mikilvægasta þingmálið við þessi þinglok og raunar á þessu kjörtímabili. Höldum því til haga.