tekjustofnar sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Þetta mál er eitt af þeim málum sem við erum að samþykkja sem hluta af gerð kjarasamnings. Að sjálfsögðu munum við í Viðreisn styðja þetta mál. En það er tvennt sem ég vil gera athugasemdir við. Eitt er að þetta kom ekki frá sveitarfélögunum sjálfum þar sem valdið liggur. Hin athugasemdin sem ég vil gera er að þetta er tilraunaverkefni til þriggja ára. Við sem höfum starfað á sveitarstjórnarstiginu vitum að við hættum ekki við verkefni eins og þetta. Hvað mun það þýða eftir þriggja ára tilraunaverkefni? Jú, reikningurinn mun lenda á sveitarfélögunum án þess að það fylgi fjármagn frá ríkinu.