tekjustofnar sveitarfélaga.
Frú forseti. Við í Samfylkingunni fögnum þessu skrefi sem samfélag okkar hefði kannski átt að taka miklu fyrr. Ég bind vonir við að eftir þrjú ár verði ný ríkisstjórn í landinu sem láti sitt ekki eftir liggja þegar kemur að því að koma þessu verkefni varanlega á koppinn. Hér er um mjög mikilvægt jafnréttismál að ræða, mikilvægt lýðheilsumál, mikilvægt barnaverndarmál. Ég tel ástæðu til þess að við þökkum verkalýðshreyfingunni enn og aftur hér í þessum sal í dag fyrir að hafa barist fyrir þessu mikla framfaramáli og samþykkjum það vonandi öll.