tekjustofnar sveitarfélaga.
Frú forseti. Að sjálfsögðu styðjum við þetta fallega mál, við í Flokki fólksins. Þetta er tímamótamál og það er alveg rétt sem hér hefur komið fram að þetta mun styðja við fátækar fjölskyldur og þetta mun styrkja það að börn geti borðað í skólanum sínum þrátt fyrir að efnahagurinn sé bágur heima. Hins vegar hef ég gert athugasemd við það að mér finnst stórfurðulegt að jafnvel milljarðamæringar, sem hafa meira heldur en ráð á því að gefa börnunum sínum að borða, skuli líka fá niðurgreiddar skólamáltíðir. Hér þekkjum við samfélag tekjutenginga og skerðinga í almannatryggingakerfinu. Við erum nýbúin að koma því af að það sé króna á móti krónu skerðing. Núna er það króna á móti 65 aurum eða jafnvel enn þá meiri skerðing á öðrum sviðum í almannatryggingakerfinu, makar eru skertir vegna tekna maka síns og annað slíkt. Við lifum hér í skerðingakerfi. Hér erum við með þriðja skattþrepið sem í rauninni kostar ríkissjóð 23 milljarða. Ég fæ að njóta þess líka. Ég, kona á háum tekjum, fæ að njóta þess líka. Mér finnst ástæða til þess og ég vænti þess að þegar þetta verður endurskoðað þá verði það gert með tilliti til þess að þeir sem hafa meira en nóg fyrir sig (Forseti hringir.) hafi líka efni á því að gefa börnunum sínum að borða í skólanum. En til hamingju með málið.