154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

tekjustofnar sveitarfélaga.

1114. mál
[12:23]
Horfa

innviðaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Þetta er slíkur gleðidagur að ráðuneytum er flækt á milli fólks og það sem er verra er það að ráðherrann sem hér stendur þakkaði velferðarnefnd fyrir vinnuna sem ég er alveg viss um að hefði haldið mjög vel utan um þetta mál en var ekki með það, (Gripið fram í.) heldur umhverfis- og samgöngunefnd. Þannig að ég ætla nú bara að þakka öllum nefndum þingsins [Hlátur í þingsal.] fyrir að leggja gott til í þessu mikilvæga máli en þó að þessu sinni fyrst og fremst hv. umhverfis- og samgöngunefnd.