154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

tekjustofnar sveitarfélaga.

1114. mál
[12:24]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Jú, jú, það er rétt að þetta var tekið fyrir í hv. umhverfis- og samgöngunefnd svo að því sé haldið til haga. Það er rétt að geta þess að í umfjöllun nefndarinnar er fjallað um hvort skoða ætti breytingu á því eða hvort það ætti að vera meira svona undir sveitarfélögunum komið hvernig ætti að takast á við málið innan sveitarfélaganna. Svo að því sé til haga haldið þá geta sveitarfélögin útfært gjaldfrjálsar skólamáltíðir með þeim hætti að foreldrar og forráðamenn sæki sérstaklega um að skólamáltíð verði gjaldfrjáls. Ljóst er að mati meiri hlutans að ákvæði frumvarpsins koma ekki í veg fyrir að sveitarfélög útfæri gjaldfrjálsar skólamáltíðir með slíkum hætti og telur meiri hlutinn því rétt að sveitarfélögum verði veitt svigrúm til að ákveða þá leið sem þau telja heppilegasta til að bjóða upp á gjaldfrjálsar skólamáltíðir. Hv. þm. Inga Sæland kom aðeins inn á þetta áðan. Þetta geta sveitarfélögin útfært með því að hver íbúi eða barn sem á rétt á þessu (Forseti hringir.) geti þá hakað t.d. við inni á vefsíðu — eða hvernig er staðið að málum.