tekjustofnar sveitarfélaga.
Frú forseti. Það er gleðilegt að sjá hér algræna atkvæðatöflu þegar við greiðum atkvæði um þetta mikilvæga jafnréttis- og lýðheilsumál og raunar kvenfrelsismál líka því að gjaldfrjálsar skólamáltíðir létta einnig vinnuálagi af þeim, sem oftast eru konur, sem sjá um að græja það að börn borði yfir daginn. Ég persónulega fagna samþykkt þessa máls mjög vegna þess að fyrr á þessu þingi lagði ég fram þingmál um sambærilegt efni og ég fagna því að þetta mál hafi verið tekið upp í gerð kjarasamninga því að líkt og ég sagði er þetta alveg gríðarlega mikilvægt mál á svo rosalega mörgum sviðum eða mörgum lögum. Ég er glöð að sjá okkur hér á Alþingi sameinast um að samþykkja þessa tillögu.