154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

listamannalaun.

937. mál
[12:32]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Hér erum við að hækka listamannalaun sem hafa ekki hækkað í mjög langan tíma. Við erum líka að fjölga mánuðunum og við erum að tryggja að ungir og efnilegir listamenn fái frekar listamannalaun nú en áður. List og menning á Íslandi gefur mikið af sér, bæði fyrir okkur sem njótum hennar en ekki síður er þetta mikilvæg atvinnugrein. Skapandi greinar hafa verið að gefa íslenska þjóðarbúinu miklar tekjur og þess vegna fagna ég því að við getum ýtt hér enn frekar undir mikilvægi listar og menningar. Við í allsherjar- og menntamálanefnd gerðum breytingu á frumvarpinu og kröfðumst upplýsinga frá ráðuneytinu til að hægt væri að sýna fram á að frumvarpið er í fullu samræmi við fyrirliggjandi fjármálaáætlun sem við samþykktum hér áðan. Þannig að þetta verkefni sem hér er er fullfjármagnað og ég bara óska listamönnum þessa lands til hamingju. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)