154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

samvinnufélög o.fl.

939. mál
[12:36]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Hv. forseti og kæru vinir og samstarfsmenn í þingsal. Verandi alinn upp á miklu samvinnuheimili og hafandi sjálfur stundað samvinnustarfsemi frá því að ég var 15 ára þá ætla ég að undir þessum lið að leyfa mér að tala um gildi samvinnuhreyfinga og samvinnu almennt og þá ekki síst hér í þingsalnum. Það er sérstakt ánægjuefni á síðasta degi þessa þings að þakka ykkur öllum fyrir samstarfið og samvinnuna. Maður gleðst mest yfir grænu litunum í atkvæðagreiðslunni og bindur í rauninni enn vonir við að fyrirheit þessarar ríkisstjórnar árið 2017 muni nú ganga að fullu eftir á síðasta þingvetrinum sem hefst í september, fyrirheitin um að fátækir, aldraðir og öryrkjar skuli ekki lengur bíða eftir réttlætinu, eins og forsætisráðherra orðaði það, og að við ætlum að bæta þingstörfin og andann hér í þinginu. Þar teldi ég rétt að við tækjum af fullum krafti utan um (Forseti hringir.) t.d. að minni hlutinn fengi svona eitt lítið mál í lokin með sér heim eftir allt stritið, (Forseti hringir.) hvort sem það er strit vetrarins eða tímabilsins. Það myndi efla andann og bæta samvinnuna í bráð og lengd. Góðar stundir.