154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

húsnæðisstefna fyrir árin 2024--2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024--2028.

509. mál
[13:14]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Líneik Anna Sævarsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta velferðarnefndar fyrir nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um húsnæðisstefnu fyrir árin 2024–2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028. Stefnan nær til 2038 en aðgerðaáætlunin til 2028. Með tillögunni er lögð fram heildstæð stefnumótun í húsnæðismálum fyrir þessi ár ásamt aðgerðaáætlun og er aðgerðaáætluninni ætlað að ná fram markmiði stefnunnar. Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti. Umsagnir bárust, auk minnisblaðs. Eru gögnin aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.

Meiri hlutinn telur tillöguna fela í sér jákvæð og mikilvæg skref í átt að því að tryggja húsnæðisöryggi í víðum skilningi. Ekki hefur áður verið lögð fram langtímastefnumótun í málaflokknum og að því leyti markar tillagan þessi tímamót. Með tillögunni verður til skýr stefna um hvernig bregðast eigi við stórauknum íbúafjölda á sama tíma og skortur er á íbúðum. Samhliða því er nauðsynlegt að húsnæðisstefna stuðli að félagslegum og efnahagslegum stöðugleika. Í þeim umsögnum sem bárust við umfjöllun nefndarinnar var lýst almennri ánægju með þær aðgerðir sem lagðar eru til, þótt hagaðilar hafi gert athugasemdir við einstaka þætti tillögunnar.

Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill meiri hlutinn árétta sérstaklega nokkur atriði auk þess að gera grein fyrir breytingartillögum. Fyrst var umfjöllun um gagnasöfnun í nefndarálitinu. Þar fjallaði nefndin um húsnæðisgrunn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, sem heldur utan um gögn og upplýsingar um húsnæðismál og tengsl hans við önnur gagnasöfn. Til að undirbúa og viðhalda gagnagrunni sem verður byggt á við gerð mælikvarða og birtingu hagtalna telur meiri hlutinn mikilvægt að viðeigandi aðilar hafi þar aðkomu. Hagstofu Íslands er t.d. ætlað að nýta stjórnsýslugögn til hagskýrslugerðar sé þess nokkur kostur og er öflun slíkra gagna grundvallaratriði hagskýrslugerðar. Meiri hlutinn telur nauðsynlegt að aðgangur stofnunarinnar að umræddum gögnum sé tryggður, ásamt því að gögnin séu samræmd og fylgi þekktum skilgreiningum en skilgreiningar sem gagnasöfn Hagstofu byggja á tryggja að einhverju leyti samanburðarhæfni milli landa.

Síðan er í nefndarálitinu fjallað um skammtímaleiguna. Þar tekur meiri hlutinn sérstaklega undir markmið sem koma fram í aðgerð 1.7 í áætluninni, um að íbúðir sem ekki eru nýttar til fastrar búsetu verði frekar nýttar sem slíkar en til skammtímaleigu. Í því samhengi bendir meiri hlutinn á að lög nr. 43/2024, sem samþykkt voru 30. apríl sl., um breytingu á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald eru liður í því að mæta því markmiði, sem sagt takmarkanir varðandi nýtingu á íbúðarhúsnæði til skammtímaleigu.

Þá er fjallað um aðgerðir til lækkunar byggingarkostnaðar og í stuttu máli má segja að í þeirri umfjöllun sé nefndin að leggja áherslu á að þeim aðgerðum sem miða að lækkun byggingarkostnaðar og auknu framboði húsnæðis verði fylgt markvisst eftir, bæði hvernig þær ganga fram og jafnframt að það fari fram kostnaðarmat og verði vegið og metið hvað aðgerðir sem hafa þetta að markmiði kosta og í samhengi við árangur af þeim. En það er einmitt á vettvangi innviðaráðuneytisins unnið að samræmdu verklagi varðandi eftirfylgd með stefnum og áætlunum þar sem gert er ráð fyrir reglubundnu stöðumati á framkvæmd áætlananna. Það sem meiri hlutinn er að leggja áherslu á þarna er að hluti af þeirri eftirfylgni fari í þetta mat.

Þá er það kolefnislosunin. Meiri hlutinn tekur undir það sem fram kemur í greinargerð með tillögunni um vistvæna mannvirkjagerð. Áætlað er að mannvirkjageirinn sé ábyrgur fyrir um 30–40% af heildarkolefnislosun á heimsvísu og því mikilvægt að unnið verði í þágu vistvænni mannvirkjagerðar. Meiri hlutinn telur þó mikilvægt að slíkar aðgerðir hafi ekki áhrif á gæði mannvirkja eða auki kostnað við byggingu þeirra og að þarna þurfi að gæta að mörgum markmiðum samtímis.

Þá er fjallað um í nefndarálitinu hlutdeildarlán og almenna íbúðakerfið. Markmiðið með aðgerð 3.7 í aðgerðaáætluninni er að stuðla að fjölgun íbúða með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði með því að húsnæðisstuðningur í formi stofnframlaga til almennra íbúða og hlutdeildarlána til íbúðarkaupa nái betur markmiðum sínum og stuðli að sjálfbærni með vistvænni mannvirkjagerð. Meiri hlutinn fjallaði um tækifærin sem felast í hlutdeildarlánunum og tækifæri sem eru fólgin í nýtingu þeirra til að bæta aðgengi tekjulágra og eignalítilla heimila og heimila með þunga framfærslubyrði að húsnæðismarkaði, fólki sem annars hefði átt í erfiðleikum með að festa kaup á eigin húsnæði. Meiri hlutinn leggur þó áherslu á að árangurinn af þessu verkfæri, hlutdeildarlánunum, verði kortlagður svo að hægt sé að gera breytingar ef þess reynist þörf til þess að skila tilætluðum árangri, sem sagt auðvitað varðandi ábyrga ráðstöfun fjármuna og árangur til handa þeim sem þessi lán eru ætluð. Þá telur meiri hlutinn tilefni til þess að skoðaður verði mögulegur ávinningur þess að rýmka umfang úrræðisins á þann veg að fleiri samfélagshópar geti notið góðs af því, svo sem eldra fólk og fatlað fólk.

Meiri hlutinn telur þá rétt að við framkvæmd aðgerðar 3.7 þurfi sérstaklega að skoða möguleika þess að jafna aðgengi fatlaðs fólks að húsnæðismarkaði, m.a. með nýtingu hlutdeildarlána eða annarra lánaflokka þar sem tekið er tillit til þeirra sem fá greiddar örorkubætur. Þá tekur meiri hlutinn undir þá athugasemd sem kemur fram í umsögn Arkitektafélags Íslands, að tryggja þurfi að íbúðir sem byggðar eru með húsnæðisstuðningi séu byggðar þannig að þær skeri sig ekki úr umhverfi sínu. Meiri hlutinn leggur til að ráðuneytið skoði þessi atriði sérstaklega sem og önnur atriði sem lúta að gæðum, þar á meðal birtugæðum, við framkvæmd stefnunnar.

Þá leggur meiri hlutinn til nokkrar breytingar. Fyrst er það varðandi aðgerð 1.5 sem eru aðgerðir vegna íbúða sem ekki eru nýttar til búsetu. Þar er lagt til að sveitarfélög fái heimild til að leggja hærri fasteignagjöld á íbúðir sem ekki eru nýttar til búsetu. Með því sé hvatt til þess að íbúðir í þéttbýli sem ekki eru nýttar til búsetu verði nýttar sem slíkar. Meiri hlutinn leggur til breytingu á orðalagi framkvæmdar aðgerðarinnar þannig að ljóst sé að heimildin nái ekki til íbúða fólks sem heldur heimili á tveimur stöðum vegna heilbrigðisþjónustu, náms eða starfa.

Síðan er það breyting sem varðar aðgerð 3.5. Eftir að tillagan var lögð fram á Alþingi voru undirritaðir kjarasamningar á almennum vinnumarkaði. Aðgerð 3.5 í aðgerðaáætluninni snýr að því að bæta réttarstöðu og húsnæðisöryggi leigjenda. Í því skyni er lagt til að lagt verði fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum á grundvelli tillagna starfshóps innviðaráðherra um endurskoðun húsaleigulaga. Það frumvarp hefur þegar verið lagt fram og er til umfjöllunar á Alþingi. Í þessu ljósi leggur meirihlutinn til að aðgerðin verði umorðuð og stytt í tillögunni og að vísað verði til framangreindra kjarasamninga og sameiginlegra aðgerða ríkisstjórnarinnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Þá er það breyting sem varðar einföldun byggingarregluverks. Meiri hlutinn telur ljóst að tækifæri séu til að lækka byggingarkostnað með einföldun á byggingarregluverki. Því leggur meiri hlutinn til breytingu á aðgerð 2.8 á þá leið að í stað þess að einungis sé mælt fyrir um að gæði í mannvirkjagerð skuli bætt með aukinni fræðslu um byggingarregluverkið verði einnig mælt fyrir um að samráð verði haft við hagaðila um einföldun byggingarregluverksins. Slík einföldun skuli þó ekki koma niður á aðgengi, gæðum og öryggi.

Þá er það sveigjanleiki deiliskipulags og einfaldari stjórnsýsla byggingarmála. Meiri hlutinn leggur til að bætt verði við aðgerð sem kveði á um að ferli við breytingar á deiliskipulagi verði einfaldað og sveigjanleiki aukinn, sem hvetur til nýrra og hagkvæmari lausna í mannvirkjagerð. Það verði þó gert án þess að gerðar verði minni kröfur um umhverfisgæði bygginga, vistspor framkvæmda og tryggt aðgengi.

Síðan er það ný aðgerð varðandi skilvirkari flokkun í leyfisveitingakerfum opinberra aðila. Þar er lagt til að innleidd verði ný flokkun í leyfisveitingakerfum opinberra aðila þar sem umsóknir verði flokkaðar eftir mikilvægi og umfangi eða flækjustigi athugasemda og þeirra úrbóta sem gera þarf til að bregðast við þeim á sem skjótastan hátt. Að auki leggur meiri hlutinn til að byggingarfulltrúa verði gert heimilt að gefa út framangreind leyfi með fyrirvörum, sem framkvæmdaraðili hefði þá tiltekinn frest til að koma til móts við. Þannig gæti verið mögulegt að veita framkvæmdaraðila heimild til að hefja framkvæmdir fyrr í slíkum tilfellum án þess þó að hann geti virt athugasemdir leyfisveitanda að vettugi á framkvæmdatíma. Leggur meiri hlutinn til að við bætist ný aðgerð í samræmi við þetta.

Svo er lögð til ein ný aðgerð í viðbót með það að markmiði að hærra hlutfall landsmanna búi í eigin húsnæði, hvort sem er vegna stuðnings frá hinu opinbera eður ei. Meiri hlutinn leggur til að kortlagt verði hve margir komist af leigumarkaði á séreignamarkað og hve stór hluti ungs fólks komist inn á húsnæðismarkað á ársgrundvelli í samanburði við fyrri ár með það fyrir augum að greina aðstæður á húsnæðismarkaði og hindranir. Sem dæmi um leið til að ná þessu markmiði er nefnt að stuðlað verði að uppbyggingu á minna og hagkvæmara húsnæði fyrir hóp fyrstu kaupenda.

Þá voru þessar níu aðgerðir komnar. Svo er hér breyting sem varðar mælikvarða varðandi hlutfall umsýslukostnaðar miðað við byggingarkostnað. Í stefnunni er m.a. fjallað um skilvirkni í opinberri stjórnsýslu, bætt starfsumhverfi í mannvirkjagerð og rekjanleika íbúðauppbyggingar í jafnvægi við umhverfið. Svo að hægt sé að mæla árangur með þau markmið til hliðsjónar leggur meiri hlutinn til að einnig verði notast við mælikvarða um hlutfall umsýslukostnaðar miðað við byggingarkostnað.

Þá eru nokkrar minni breytingar, tæknilegar og einfaldar orðalagsbreytingar án þess að það sé beinlínis verið að breyta merkingu, frekar orðanotkun. Þar er m.a. verið að bregðast við athugasemdum í sameiginlegri umsögn BSRB og ASÍ og í umsókn Byggðastofnunar. Svo er lögð til breyting á samstarfsaðilum í aðgerð 3.7.

Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að tillagan verði samþykkt með breytingum sem lagðar eru til á sérstöku þingskjali.

Undir nefndarálitið rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Steinunn Þóra Árnadóttir, formaður nefndarinnar, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, sem er framsögumaður nefndarinnar og undirbjó þetta nefndarálit, Ásmundur Friðriksson, Bryndís Haraldsdóttir. Þá ritar Óli Björn Kárason undir álitið með fyrirvara.