húsnæðisstefna fyrir árin 2024--2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Forseti. Ég mæli hér fyrir minnihlutaáliti mínu í þessu máli. Ég held að það sé alveg óhætt að segja að við Píratar styðjum málið að meginefni en vandinn er auðvitað sá að það liggur ekki alveg ljóst fyrir hvernig og hvort þær aðgerðir sem þarna eru lagðar til verði fjármagnaðar. Við vitum auðvitað að þegar fjármagn liggur ekki að baki aðgerðum þá hættir áætlunum sem þessum til að vera orðin tóm.
Öruggt húsnæði er ein af grunnþörfum fólks og forsenda öryggis og velferðar. Í niðurstöðum starfshóps um aðgerðir og umbætur á húsnæðismarkaði sem kom út í maí 2022 er að finna svohljóðandi skilgreiningu á húsnæðisöryggi, með leyfi forseta: „Húsnæðisöryggi felur að meginstefnu í sér tryggt, heilnæmt og varanlegt húsnæði fyrir einstaklinga og fjölskyldur á viðráðanlegu verði þannig að húsnæðiskostnaður sé í samræmi við greiðslugetu. Við mat á húsnæðisöryggi er því m.a. horft til byrði húsnæðiskostnaðar, ástands húsnæðis, þröngbýlis og stöðugleika í búsetu.“
Húsnæðismál hafa víðtæk áhrif á samfélagið til lengri og skemmri tíma. Félagslegum jöfnuði verður ekki náð fyrr en allir landsmenn búa við húsnæðisöryggi og húsnæði byggt með opinberum stuðningi er fjárfesting til framtíðar, samfélaginu öllu til heilla. Öllum má vera ljóst að ófremdarástand hefur skapast á húsnæðismarkaði undanfarin ár. Ekki aðeins hefur hækkandi verðbólga og vextir reynst heimilum landsins þungur baggi heldur stækkar sífellt gjáin milli þeirra sem eiga þess kost að kaupa sér eigið húsnæði og þeirra sem eru á leigumarkaði. Þetta ástand er ekki aðeins vegna stöðu efnahagsmála heldur einnig vegna aðgerða ríkisstjórna síðastliðins áratugar sem hafa einkum verið til hagsbóta fyrir eignafólk. Það er afar brýnt að aðgerðir ríkisstjórnarinnar auki ekki á húsnæðisvandann heldur ráði á honum bót. Bjóða þarf upp á sanngjarnan húsnæðismarkað og úrræði í húsnæðismálum sem keyra ekki bara á séreignarstefnu heldur fjölbreyttu húsnæði og búsetuformum til kaups og leigu um land allt.
Stefnur og úrræði í húsnæðismálum heilt yfir snerta fleiri en eitt ráðuneyti, þ.e. innviðaráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, félags- og vinnumarkaðsráðuneyti og heilbrigðisráðuneyti. Því er miður að húsnæðisstefna þessi snerti aðeins á málefnasviði eins ráðuneytis, líkt og var áréttað í minnisblaði innviðaráðuneytis frá 1. mars sl., en það endurspeglar í sjálfu sér þá sundrungu sem einkennir núverandi ríkisstjórn. Af þeim sökum verður aðeins málefnasviði þess ráðuneytis gefinn gaumur en þetta eru ekki tæmandi talin sjónarmið 1. minni hluta er varða húsnæðisöryggi á víðtækari grundvelli.
Hjá gestum þeim sem komu fyrir nefndina við meðferð málsins var athygli vakin á því að í Noregi er sem dæmi sérstakur sjóður sem veitir fötluðu fólki styrki til að aðlaga húsnæði að sínum þörfum. Það er vandamál á Íslandi að húsnæði er oft óaðgengilegt fötluðu fólki og öldruðu og kemur ekki nægilega til móts við þarfir þess. Ísland ætti að taka Noreg sér til fyrirmyndar með þá stefnu að fólk sem er til þess bært geti búið í sínu eigin húsnæði ef það vill. Vegna aðstæðna hérlendis neyðist fólk oft til þess að þiggja pláss í þjónustuíbúð, sambýli eða á hjúkrunarheimili þó að þjónustuþörfin sé í reynd ekki svo mikil, eingöngu vegna þess að aðgengismál eru í ólagi og/eða kostnaður vegna sérstakra innréttinga eða hjálpartækja er of mikill. Landssamtökin Þroskahjálp bentu einnig á þessa stöðu, að biðlistar lengjast eftir plássum á sambýlum og hjúkrunarheimilum, m.a. til þess að mæta þörfum fólks sem gæti enn og vildi gjarnan búa heima hjá sér ef húsnæðið mætti þörfum þess.
Mikið hefur farið fyrir gæðamálum í umræðu um húsnæðismál að undanförnu, einkum hvað varðar mygluvandamál. Hefur því m.a. verið haldið fram að gæði húsnæðis fari versnandi vegna þess að eftirlit sé lítið sem ekkert, og veikt þar sem það er þó til staðar, og að takmörkuð viðurlög séu við brotum. Samtök iðnaðarins og Samtök atvinnulífsins hafa bent á það árum saman að byggingarstjórar hafi að mestu leyti eftirlit með sjálfum sér meðan á byggingartíma stendur. Því er miður að mati 1. minni hluta að hvorki sé tekið á staðlavinnu né eftirliti í stefnunni sem nú liggur fyrir. Staðlavinna er vanfjármögnuð og hún er ekki nógu faglega unnin. Þar er ekki aðeins átt við eftirlit með framkvæmdum heldur einnig með byggingarvörum og hráefni, en þar leynist oft orsök galla og mygluvandamála sem koma síðar upp. Umsagnaraðilar hafa áréttað mikilvægi rannsókna á þessu sviði og benda á að hver króna sem fari í slíkar rannsóknir komi margfalt til baka samkvæmt reynslu annars staðar á Norðurlöndum.
Forseti. Þegar unnið er að langtímaáætlunum er mikilvægt að vandað sé til verka. Þar sem húsnæðismál snerta á málefnasviði fleiri en eins ráðuneytis væri óskandi að viðeigandi ráðuneyti ynnu saman að heilsteyptri stefnu þar sem úrræði milli ráðuneyta mynduðu eina heild, í stað þess að vinna hvert í sínu horni. Helsti vandinn sem helst blasir við íslenskum almenningi í dag er framboðsskortur á húsnæði. Við mótun langtímastefnu verður líka að gæta að þeim sem höllustum fæti standa og tryggja að allir íbúar landsins búi við húsnæðisöryggi. Það hlýtur að vera markmið okkar allra. Við Pírata styðjum meginatriði þessa máls, líkt og ég sagði hér áðan, en erum hikandi við að vera á græna takkanum eða gula í ljósi þess að fjármögnun verkefnisins liggur ekki fyrir.