breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Frú forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta velferðarnefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis Ræðu minni til grundvallar liggur langt og ítarlegt nefndarálit og ég ætla að stikla á stóru í því en vísa að öðru leyti til þess til frekari glöggvunar.
Frumvarpið er liður í heildarendurskoðun almannatryggingakerfisins. Með því eru lagðar til umfangsmiklar breytingar á örorkulífeyriskerfi almannatrygginga samkvæmt lögum um almannatryggingar og á fyrirkomulagi stuðningskerfis vegna heilsubrests og endurhæfingar. Fyrir frekari umfjöllun um frumvarpið vísa ég til greinargerðar þess.
Velferðarnefnd fjallaði um málið og fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir og gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Ein þeirra grundvallarbreytinga sem lagðar eru til með frumvarpinu er innleiðing samþætts sérfræðimats sem komi í stað skilyrðis í núgildandi lögum um læknisfræðilegt örorkumat. Um samþætt sérfræðimat er kveðið á í c-lið 3. gr. frumvarpsins. Þar segir í 1. mgr. að Tryggingastofnun beri ábyrgð á gerð samþætts sérfræðimats sem er forsenda fyrir greiðslu örorkulífeyris. Tryggingastofnun sé þó heimilt að víkja frá skilyrði um samþætt sérfræðimat ef slíkt mat er bersýnilega óþarft að mati stofnunarinnar. Í niðurstöðum matsins skal koma fram hver geta viðkomandi einstaklings til virkni á vinnumarkaði sé. Samþætt sérfræðimat skal ekki koma til fyrr en endurhæfing eða viðurkennd meðferð, sem hefur það að markmiði að stuðla að aukinni færni til atvinnuþátttöku að fullu eða að hluta, er fullreynd. En eins og áður sagði er Tryggingastofnun heimilt að víkja frá því skilyrði um mat ef það er bersýnilega óþarft að mati stofnunarinnar.
Meðal þeirra ábendinga sem fram komu í umsögnum réttindasamtaka var að ekki lægi fyrir hvernig samþætt sérfræðimat yrði framkvæmt og að tilefni væri til að kveða skýrar á um framkvæmd þess í ákvæðum frumvarpsins. Í minnisblaði ráðuneytisins kemur fram að samþætt sérfræðimat verði heildrænt mat þar sem megináhersla verður á færni einstaklings í samspili við umhverfi og aðstæður og að horft verði til allra notendahópa við þróun þess. Þar er jafnframt bent á að með því að taka umhverfisþætti inn í matið sé betur tekið tillit til raunverulegra aðstæðna fólks auk þess sem betur verði hægt að taka tillit til þeirra sem búa við fötlun eða eru með skerðingar.
Nefndin fékk kynningu á framkvæmd og þróun matsins, m.a. frá fulltrúum vinnuhóps um innleiðingu matsins sem settur var á laggirnar í janúar. Þá er gert ráð fyrir að fyrir innleiðingu matsins yfirfari starfshópur, sem í eiga sæti fulltrúar þeirra fagstétta sem koma að framkvæmd matsins auk fulltrúa hagsmunasamtaka fatlaðs fólks og Landssamtaka lífeyrissjóða, þá þætti sem matið mun innihalda. Í nefndaráliti meiri hluta er enn ítarlegri grein gerð fyrir þessu samþætta sérfræðimati.
Félag heyrnarlausra bendir í umsögn sinni til nefndarinnar á að flokkunarkerfið sem samþætt sérfræðimat byggist á geri ekki ráð fyrir notkun táknmáls til tjáningar og samskipta og bendir jafnframt á að félagið hefur um árabil barist fyrir því að tryggður verði réttur döff fólks til endurgjaldslausrar túlkaþjónustu í daglegu lífi. Meðal annars vegna skorts á henni hafi döff einstaklingar ekki getað verið á vinnumarkaði til jafns við heyrandi fólk.
Meiri hlutinn tekur undir þessi sjónarmið og bendir á að mikilvægt er að halda áfram vinnu við það að tryggja réttindi þeirra sem tala íslenskt táknmál. Í nýsamþykktri þingsályktun um málstefnu íslensks táknmáls fyrir árin 2024–2027 og aðgerðaáætlun segir t.d. að jafnri þátttöku táknmálstalandi fólks í íslensku þjóðlífi verði náð með aðgerðum sem þar eru lagðar fram. Þetta skiptir máli.
Þá fjallaði nefndin um nýtt greiðslukerfi almannatrygginga. Útreikningar sýna að réttindi örorkulífeyrisþega innan almannatryggingakerfisins aukast umtalsvert verði frumvarpið að lögum. Þá styrkist réttarstaða einstaklinga með langvarandi eða alvarlegan heilsubrest sem þarfnast tímabundinna greiðslna vegna óvinnufærni í kjölfar sjúkdóma, slysa eða áfalla og hagur þeirra sem hafa áunnið sér lítinn lífeyrisrétt í lífeyrissjóðakerfinu verður bættur með sameiningu greiðsluflokka og hærri frítekjumörkum en nú eru í gildi. Lagt er til í frumvarpinu að ýmsir greiðsluflokkar verði sameinaðir og til verði nýr örorkulífeyrir. Hvernig þetta er gert er nánar útlistað í nefndarálitinu.
Fram kemur í greinargerð með frumvarpinu að sú mikla hækkun sem felst í nýjum sameinuðum örorkulífeyri geri það að verkum að ráðstöfunartekjur greiðsluþega hækka flestum tilvikum til muna. Vissulega hækka þeir mest sem nú þegar fá minnst út úr kerfinu og það finnst mér mikilvæg forgangsröðun þegar kemur að því að hækka bætur, en auðvitað þurfum við að halda áfram að bæta kjörin. Þetta skiptir máli.
Vinnumálastofnun verði heimilt að greiða virknistyrk til atvinnuleitenda sem eiga rétt á hlutaörorkulífeyri á grundvelli laga um almannatryggingar. Hægt verður að fá greiddan virknistyrk í 24 mánuði frá þeim degi er Vinnumálastofnun tók við umsókn en greiðslur virknistyrks falla niður hefji atvinnuleitandi störf á vinnumarkaði. Við umfjöllun nefndarinnar kom fram að ekki væri ljóst við hvað væri miðað þegar greiðslur virknistyrks væru felldar niður á grundvelli ákvæðisins þegar um væri að ræða tilfallandi vinnu. Skýrt þyrfti að vera að fólki yrði ekki refsað fyrir það að taka að sér tilfallandi verkefni, enda sé það markmið virknistyrksins að hvetja fólk til vinnu.
Það kemur þó skýrt fram í greinargerð með málinu að ekki sé gert ráð fyrir að virknistyrkur sé greiddur fyrir þá daga sem vinna er innt af hendi og að niðurfelling greiðslna þá daga sé óháð því hvað viðkomandi fær í tekjur fyrir þá vinnu. Meðal breytingartillagna meiri hlutans er tillaga sem miðar að því að gera þetta ákvæði enn skýrara svo að þarna sé enginn vafi.
Gert er ráð fyrir því að virknistyrkur verði ekki felldur niður hafi réttlætanlegar ástæður verið fyrir því að starfi, atvinnuviðtali eða þátttöku í vinnumarkaðsúrræði var hafnað eða atvinnuviðtali ekki sinnt. Meðal annars á að taka mið af aldri, félagslegum aðstæðum, umönnunarskyldu, heimilisaðstæðum og aðstæðum vegna skertrar getu til virkni á vinnumarkaði samkvæmt samþættu sérfræðimati eða vottorði sérfræðilæknis. Þetta skiptir líka miklu máli.
Við umfjöllun nefndarinnar kom fram að samspil launatekna og hlutaörorkulífeyris kynni að vera óhagstæðara gagnvart þeim sem lægst hafa laun samkvæmt frumvarpinu í samanburði við það ef fólk með sömu laun fengi greiddan örorkulífeyri samkvæmt gildandi lögum. Til að bregðast við þessu er meðal breytingartillagna meiri hlutans tillaga um að hækka fjárhæð hlutaörorkulífeyris um 25.000 kr. þannig að hann nemi hærra hlutfalli af fullum örorkulífeyri eða 82%. Þetta skiptir líka gríðarlega miklu máli til að standa vörð um kjör fólks.
Þeir sem fá greiddan örorkulífeyri í núverandi kerfi færast yfir á örorku yfir í nýju kerfi, hvort sem þeir eru með varanlegt eða tímabundið örorkumat núna. Þeim verður hins vegar heimilt að óska eftir nýju samþættu sérfræðimati kjósi þeir svo.
Ég ætla ekki að fara mörgum orðum um ákvæði um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur en almennrar ánægju gætti meðal umsagnaraðila með þau ákvæði og bent var á mikilvægi þess að verði frumvarpið að lögum verði framfærsla meðan á endurhæfingu stendur betur tryggð.
Í umsögn Stígamóta kemur fram að miður sé að ekki sé sagt berum orðum í frumvarpi eða greinargerð með því að meðal þess sem geti talist til áfalla samkvæmt frumvarpinu sé ofbeldi. Líkt og fram kemur í umsögninni geta afleiðingar ofbeldis verið svo alvarlegar að þær hafi veruleg áhrif á starfsgetu á vinnumarkaði. Þótt ekki sé sérstaklega fjallað um ofbeldi í greinargerð frumvarpsins telur meiri hlutinn ljóst að afleiðingar þess geti leitt til heilsubrests sem geti orðið grundvöllur sjúkra- og endurhæfingargreiðslna og viðeigandi þjónusta geti þar með orðið hluti af endurhæfingaráætlun viðkomandi.
Frú forseti. Næst ætla ég að fjalla um breytingar sem meiri hluti velferðarnefndar leggur til. Fyrst um samþætt sérfræðimat. Í greinargerð frumvarpsins kemur fram að hið nýja samþætta sérfræðimat byggist á ICF, alþjóðlegu flokkunarkerfi um færni, fötlun og heilsu, sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin gefur út og viðheldur. Meiri hlutinn leggur til breytingu þess efnis að við 3. mgr. c-liðar 3. gr. bætist málsliður þar sem fram komi að matið skuli m.a. byggjast á þáttum sem lúta að færni, aðstæðum (umhverfis- og einstaklingsbundnum þáttum) og heilsu í víðum skilningi. Breytingunni er ætlað að vera til áréttingar á þeim forsendum sem liggja skulu til grundvallar matinu.
Næst um hækkun hlutaörorkulífeyris sem ég tæpti á áðan. Meiri hlutinn leggur til breytingu þess efnis að hlutaörorkulífeyrir hækki þannig að hann nemi 82% af fullum örorkulífeyri í stað 75% eins og það er í frumvarpinu og hækki þar með um 25.000 kr. Með þessu er afkoma þeirra sem fá vinnu í lágu starfshlutfalli og með lág laun betur tryggð. Með breytingunni er að hluta dregið úr vægi virknistyrks, enda nemur fjárhæð hans mismuni hlutaörorkulífeyris og fulls örorkulífeyris. Þannig verða áhrif tilfallandi vinnu á heildartekjur einstaklinga sem fær greiddan virknistyrk jafnframt minni.
Næst um tímabil virknistyrks og áhrif tilfallandi vinnu. Við umfjöllun nefndarinnar kom fram að ekki væri skýrt með hvaða hætti gert væri ráð fyrir að virknistyrkur yrði greiddur í tilviki þeirra sem taka að sér tilfallandi vinnu. Í greinargerð kemur fram að taki atvinnuleitandi að sér tilfallandi vinnu sé ekki gert ráð fyrir því að virknistyrkur sé greiddur fyrir þá daga sem vinnan er innt af hendi. Meiri hlutinn telur þennan skilning ekki endurspeglast að fullu í ákvæðinu sjálfu eins og það stendur og leggur til að við bætist málsliður þar sem tekið verði fram að taki atvinnuleitandi að sér tilfallandi vinnu sé ekki greiddur virknistyrkur fyrir þá daga sem vinnan stendur yfir.
Þá að ábendingum Persónuverndar en í umsögn stofnunarinnar eru gerðar nokkrar athugasemdir við ákvæði frumvarpsins sem snúa að vinnslu persónuupplýsinga. Meiri hlutinn tekur undir þær ábendingar og leggur til breytingar í samræmi við umsögnina og vísa ég til nákvæmrar útlistunar á þeim breytingum í nefndaráliti minni hlutans.
Frú forseti. Þá um samanburð á útreikningi endurhæfingarlífeyris og tengdra bóta í gildandi kerfi. Í minnisblaði ráðuneytisins kemur fram að vegna breyttrar samsetningar greiðsluflokka núverandi endurhæfingarlífeyris og hinna nýju sjúkra- og endurhæfingargreiðslna sé nauðsynlegt að leggja til breytingu á 12. gr. frumvarpsins. Um er að ræða ákvæði sem felur í sér samanburð á útreikningi endurhæfingarlífeyris og tengdra bóta samkvæmt gildandi kerfi annars vegar og endurhæfingargreiðslum og heimilisuppbót samkvæmt nýju greiðslukerfi hins vegar. Þetta er sem sagt til að sambærilegt gildi um endurhæfingargreiðslur í nýju kerfi, líkt og gerist með örorkulífeyrisgreiðslurnar.
Þá að endurskoðun laganna og skipan starfshóps um mat á markmiðum kerfisbreytinga. Þar eru einnig breytingartillögur frá meiri hluta nefndarinnar. Í 17. tölulið 12. gr. er lagt til að við lög um almannatryggingar bætist ákvæði til bráðabirgða þar sem kveðið verði á um endurskoðun laganna fyrir 1. september 2030 í ljósi reynslunnar af breyttu fyrirkomulagi. Að auki skal ráðherra fyrir árslok skipa starfshóp þriggja til fimm sérfræðinga sem greini áhrifin og meti hvort markmiðin með þeim kerfisbreytingum sem lögin fela í sér hafi náð fram að ganga. Gert er ráð fyrir að starfshópurinn skili skýrslu til ráðherra eigi síðar en 31. desember 2029.
Hvað varðar tímamark endurskoðunar komu fram ábendingar þess efnis að nokkuð langur tími liði frá gildistöku laganna og þar til þau ættu að sæta endurskoðun. Meiri hlutinn leggur til þá breytingu að mat skuli lagt á það að þremur árum liðnum hvernig fólki sem hefur fengið greiddan virknistyrk reiðir af á vinnumarkaði og hvort grípa skuli til frekari vinnumarkaðsaðgerða. Þá verði jafnframt skoðað með hvaða hætti aðstæður einstaklinga hafa verið metnar heildstætt. Hins vegar verður ekki talið skynsamlegt að festa í lög að heildarendurskoðun á lögunum skuli eiga sér stað fyrr enda verða áhrif kerfisbreytinganna ekki komin að fullu fram á þessu tímabili. Þau sem koma til með að nýta sér að fullu skilyrðin um endurhæfingu verða ekki búin að ljúka því tímabili þegar þessi atriði verða endurskoðuð.
Meiri hlutinn leggur til nokkrar breytingar á 2. mgr. 17. töluliðar sem fjallar um skipan starfshópsins. Í fyrsta lagi telur meiri hlutinn eðlilegt að starfshópurinn taki til starfa strax við gildistöku laganna 1. september 2025 þannig að honum verði unnt að greina áhrifin frá þeim degi er breytingarnar öðlast gildi.
Í öðru lagi leggur meiri hlutinn til að sérstaklega verði kveðið á um það í ákvæðinu að hagsmunasamtök fatlaðs fólks tilnefni sameiginlega einn fulltrúa til setu í hópnum.
Í ákvæðinu er í dæmaskyni tekið fram að í skýrslu starfshópsins skuli fjallað um tiltekin atriði, svo sem innleiðingu laganna og áhrif þeirra á einstaka hópa. Meiri hlutinn leggur í þriðja lagi til að við upptalninguna verði bætt að starfshópurinn fjalli um árangur af samþættu sérfræðimati.
Samkvæmt 3. málslið 2. mgr. 17. töluliðar 12. gr. getur starfshópurinn lagt fram tillögur til úrbóta ef svo ber undir. Mikilvægt er að starfshópurinn geti lagt fram slíkar tillögur áður en hann lýkur störfum sínum telji hann tilefni til. Þótt meiri hlutinn telji þá heimild leiða af ákvæðinu sjálfu telur meiri hlutinn að lokum rétt að leggja til breytingu á orðalagi þannig að hlutverk starfshópsins verði skýrara að þessu leyti.
Þá eru lagðar til minni háttar eða lagatæknilegar breytingar sem þarfnast ekki sérstakrar umfjöllunar. Vísast að öðru leyti til ítarlegri umfjöllunar um breytingartillögur í nefndarálitinu.
Að framansögðu virtu leggur meiri hluti velferðarnefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem hér hefur verið gerð grein fyrir.
Undir nefndarálit þetta rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Ásmundur Friðriksson, Bryndís Haraldsdóttir, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Líneik Anna Sævarsdóttir og Óli Björn Kárason.
Frú forseti. Við gerð þinglokasamninga var ákveðið að gera frekari breytingar á þessu máli. Stjórnarandstaðan hafði í sameiningu lagt fram breytingartillögur sem við gerð þinglokasamninga var ákveðið að taka utan um. Ég ætla nú fyrir hönd velferðarnefndar að mæla fyrir framhaldsnefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga þar sem er í rauninni útfært í þinglegu skjali það sem varð niðurstaðan í þinglokasamningum.
Breytingartillögur meiri hlutans eru á þskj. 1849 og er efnislega gerð grein fyrir þeim í því nefndaráliti sem ég var að mæla fyrir. Breytingartillögur sem sameiginlega voru lagðar fram af minni hluta nefndarinnar eru á þskj. 1907. Nefndin sammæltist um að breytingartillögur á báðum þingskjölum geti verið málinu til framdráttar og mælir með samþykkt þeirra að hluta en þó er nokkurra breytinga þörf.
Í breytingartillögu á þskj. 1907 er lagt til að sá tími sem hlutaörorkulífeyrisþegi í atvinnuleit þarf að hafa verið í atvinnuleit áður en til niðurfellingar virknistyrks geti komið verði lengdur úr tveimur mánuðum í sex mánuði. Nefndin leggur til að ákvæðið haldist óbreytt, en að horft verði sérstaklega til þess hvort tilefni sé til að taka framangreint tímabil til endurskoðunar þegar ráðuneytið leggur mat á áhrif virknistyrks á stöðu hlutaörorkulífeyrisþega á vinnumarkaði, sbr. 7. tölulið breytingartillögu á þskj. 1849. Því leggur nefndin til þá breytingu að 4. töluliður breytingartillögu á þskj. 1907 falli brott. Samhliða því er lögð til breytingartillaga við 7. tölulið breytingartillögu á þskj. 1849 til áréttingar á því að þetta atriði skuli hljóta endurskoðun við mat ráðherra.
Í 1. tölulið breytingartillögu á þskj. 1907 er lagt til að 2. og 3. málsliður 6. mgr. g-liðar 3. gr. falli brott. Í ákvæðinu er kveðið á um að tekjur maka greiðsluþega hafi ekki áhrif á útreikning greiðslna örorkulífeyris, hlutaörorkulífeyris og sjúkra- og endurhæfingarlífeyris. Þó skuli fjármagnstekjur maka skiptast til helminga milli hjóna við útreikning greiðslna. Nefndin leggur til að tillagan um brottfall reglunnar hljóti frekari greiningu og skoðun í samstarfi félags- og vinnumarkaðsráðuneytis og fjármála- og efnahagsráðuneytis. Nefndin beinir því til ráðuneytanna að taka tillöguna til efnislegrar skoðunar.
Þar sem e-liður 2. töluliðar í breytingartillögu á þskj. 1907 kveður á um að ráðherra skuli skila skýrslu eigi síðar en 1. maí 2025, er lögð til breyting á gildistökuákvæði frumvarpsins þess efnis að sá töluliður öðlist þegar gildi.
Frú forseti. Að framansögðu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem lagðar eru til á þskj. 1849 og 1907, að teknu tilliti til þeirra breytinga sem ég hef hér gert ráð fyrir.
Undir þetta nefndarálit sem flutt er af velferðarnefnd rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Jóhann Páll Jóhannsson, Ásmund Friðriksson, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, Bryndís Haraldsdóttir, Guðmundur Ingi Kristinsson, Iða Marsibil Jónsdóttir og Líneik Anna Sævarsdóttir.
Frú forseti. Mér finnst mikilvægt með svona gríðarlega stórt og mikið hagsmunamál að þingið, líkt og hér er verið að gera, taki höndum saman og sameinist um breytingartillögur. Frumvarpið eins og það kom frá hæstv. ráðherra var gott en hér er með vinnu nefndarinnar verið að skrúfa skrúfurnar enn þéttar til að tryggja enn betur kjör öryrkja og endurhæfingarlífeyrisþega við þessar miklu kerfisbreytingar. Mér finnst það til mikillar fyrirmyndar hvernig velferðarnefnd tók utan um málið eftir að skrifað hafði verið undir þinglokasamninga.
Ég verð því að segja að ég varð hissa og það kom mér á óvart að skömmu eftir að velferðarnefnd hafði gengið frá og afgreitt frá sér þetta nefndarálit þá birtist nefndarálit með breytingartillögum frá hv. þm. Guðmundi Inga Kristinssyni sem stóð að breytingartillögum velferðarnefndar. Að sjálfsögðu geta þingmenn lagt fram breytingar við mál ef þeir kjósa svo. En það er hins vegar þannig að gangi menn til samninga um að ljúka málum með tilteknum hætti, þar sem tekið er undir breytingartillögur sem fram koma og voru góðar frá minni hlutanum og þeim fundinn farvegur, þá finnst mér það skrýtin framkvæmd að koma að auki með breytingartillögur. Í mínum huga þá annaðhvort gerir þú samkomulag eða ekki. Það er mín skoðun á þessu máli.
Ég tel hins vegar að með frumvarpinu, með breytingartillögum meiri hluta velferðarnefndar og þeim breytingartillögum sem velferðarnefnd í sameiningu stendur að, höfum við tekið vel utan um stórt og mikilvægt mál. Frumvarp þetta, verði það samþykkt með þessum breytingartillögum, verður gjörbreyting á örorkulífeyrishluta almannatryggingakerfisins. Kerfið verður einfaldara og gagnsærra eftir breytingarnar sem gerir það að verkum að það er auðveldara fyrir fólk að átta sig á rétti sínum. Dregið er úr skerðingum sem við erum öll sammála að hafa verið allt of miklar. Og kjarabæturnar sem í frumvarpinu felast eru gríðarlega miklar, enda er það kostnaðarmetið upp á um 18 milljarða kr. Vegna breytingartillagnanna sem verið er að gera þá mun það á einhverjum tíma líklega verða enn meira. Allir þessir peningar rata til þeirra sem á þurfa að halda vegna örorku eða endurhæfingar.(Forseti hringir.)
Frú forseti. Ég vona að þetta frumvarp verði samþykkt með þessum breytingartillögum sem ég hef mælt fyrir.