154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

864. mál
[14:09]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni, formanni velferðarnefndar, fyrir hennar framsögu á þessu frumvarpi sem hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson er ekki á eins og ég býst við að hv. formaður velferðarnefndar viti. (Gripið fram í: Ha?) Mig langar til að spyrja hv. þingmann, þegar hún talar um hæstu laun, þá sem fá mest greitt, 33.272 kr., hvort henni þyki það vera ríflegt og eitthvað til að státa af. Og mig langar að spyrja hv. þingmann að því hvort það er fyrir eða eftir skatt og hvort sú hámarksupphæð sem öryrki sem nýtur fullra réttinda þann 1. september 2025 fær greidda, eða endurhæfingarlífeyrir, 385.000 kr., hvort það er fyrir eða eftir skatt og hvað upphæðin er þá há þegar búið er að taka skatt af henni og hvort sú upphæð sé talin það rausnarleg miðað við dýrtíð og ástandið í samfélaginu hér að öryrki geti um frjálst höfuð strokið og haldið úti sínu heimilishaldi og leigt sér jafnvel þak yfir höfuðið.

Þegar hv. þingmaður kemur hér og brigslar um það að Flokkur fólksins eða hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson sé að koma hér með breytingartillögu þá er sú breytingartillaga löngu ákveðin (Gripið fram í.) og hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson hafði tekið það fram í velferðarnefnd að hann myndi bæði koma með sérnefndarálit og breytingartillögur (Gripið fram í.) en í sameiningu með ákveðnum breytingartillögum … (Gripið fram í.) Viltu fyrirgefa, hv. þingmaður, er ég að tala við þig? (Gripið fram í.) Þannig að ég segi bara aðeins þetta: Þetta er rakalaus þvættingur og það er ekki búið að svipta okkur í einu eða neinu okkar eigin valdi á því hvernig við vinnum okkar vinnu. Þetta frumvarp, það hefur aldrei verið samið um að Flokkur fólksins myndi styðja það (Forseti hringir.) að einu eða neinu leyti nema hvað lýtur að þessum sameiginlegu breytingartillögum (Forseti hringir.) sem við gerðum með stjórnarandstöðunni eftir ítrekaðar áskoranir þaðan frá.

(Forseti (ÁsF): Ég bið þingmenn í ræðustól að gæta orða sinna og þingmenn í hliðarsölum (IngS: Ég sagði ekkert ljótt, herra forseti.)að vera ekki að tala til þeirra sem eru að halda ræður. Förum hér að fundarsköpum.)