breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Virðulegi forseti. Ég furða mig mjög á þeim ummælum sem hér voru viðhöfð. (IngS: Eigum við ekki bara fyrst að byrja á að svara spurningunum?) Eigum við ekki bara fyrst að ræða um það að þegar menn skrifa undir nefndarálit þá hljóta menn að standa við það sem í nefndarálitinu stendur? Velferðarnefnd flytur hér mál í sameiningu. Kannað var hvort viðstaddir nefndarmenn hygðust standa að álitinu og allir viðstaddir gáfu merki um að það væri gert og um það má lesa í framhaldsnefndaráliti. Það er það sem ég er að vísa í sem og það samkomulag sem skrifað var undir í þinglokum að skipti máli. Og já, það er rétt að þingmenn geta alltaf lagt fram breytingartillögur en að menn telji eðlilegt að gera það á sama tíma og menn í það minnsta þykjast vera að taka þátt í því í sameiningu að standa að málum, það finnst mér furðuleg vinnubrögð. (Gripið fram í.)
Herra forseti. Eftir þessar breytingar verður það þannig að örorkulífeyrisþegi sem býr einn og nýtur fullra réttinda í kerfinu verður með greiðslur sem eru aðeins hærri en lágmarkslaun á vinnumarkaði. Nú ætla ég ekki að halda því fram að neinn sé ofhaldinn af þeim greiðslum (Forseti hringir.) en það skiptir máli að setja hlutina í samhengi (Forseti hringir.) og þannig eru þær greiðslur.
(Forseti (ÁsF): Forseti gerir þá kröfu að þingmaður í ræðupúlti fái frið til þess að tala.)