breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Herra forseti. Þakka þér fyrir það. Stundum er það nú eiginlega bara næstum því ofvaxið að virða það að þegja hérna í salnum. En það breytir ekki þeirri staðreynd að ég fékk mjög lítil svör. Ég spyr hv. þingmann aftur: Hvað er öryrki og endurhæfingarlífeyrisþegi að fá útborgað og greitt þegar þessi gjörningur er kominn að fullu til framkvæmda? Hversu marga þúsundkalla yfir 300.000 kr. er hann að fá útborgað eftir að hans fátækt hefur verið skattlögð? Svo annað: Þegar hv. þingmaður fór með ræðu sína þá benti hún í fyrsta lagi á starfsgetumat. Veit hv. þingmaður hvað starfsgetumat hefur tekið mörg líf í Bretlandi — mig langar til þess að vita það — og hvernig starfsgetumat hefur farið með öryrkja vítt og breitt um Evrópu? Og er búið að undirstinga það hér að einstaklingar sem á að þvinga út á vinnumarkað, hvort sem þeim líkar betur eða verr, séu með möguleika á því að fá vinnu?