154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

864. mál
[14:15]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Steinunn Þóra Árnadóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Er til of mikils mælst að hv. þingmaður kynni sér það efni sem frumvarpið hér gengur út á? Hér erum við að tala um samþætt sérfræðimat þar sem á að líta til umhverfisþátta, til getu fólks, þar sem á að meta það heildstætt. Hér er ekki um að ræða starfsgetumat eins og hið breska kerfi er, sem við vitum öll að hefur ekki virkað og við erum einmitt að passa að verði ekki innleitt hér á landi. Þetta ætti hv. þingmaður að sjá ef hún myndi lesa greinargerð og nefndarálit meiri hluta nefndarinnar.

Hvað varðar fjárhæðir þá er erfitt að segja hvað einstaklingurinn verður nákvæmlega með eftir því hvernig greiðsluflokkarnir eru samsettir. Fjárhæð hins breytta örorkulífeyris verður 380.000 kr. Við það getur bæst aldurstengd uppbót, heimilisuppbót (Forseti hringir.) sem ég veit ekki nákvæmlega hver verður en við erum að hækka hana frá því sem er, (Forseti hringir.) barnalífeyrir og annað. Þannig að ég vona að ég hafi svarað spurningu hv. þingmanns hvað þetta varðar.

(Forseti (ÁsF): Ég minni þingmenn á að ræðutíminn í seinni umferð er aðeins ein mínúta, því miður.)