breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Forseti. Eitt svona lauflétt inn í þessa umræðu: 62. gr., eða gamla 69. gr., er með svo rosalega óskýra framkvæmdarlýsingu á því hvernig á að hækka greiðslur almannatrygginga til öryrkja samkvæmt launaþróun. Nú hefur verið rifist um það ansi lengi hvað það þýðir í raun og veru og hver er sinn skilningur á því innan ráðuneyta og þings og ýmislegt svoleiðis. Ég velti því fyrir mér af hverju það var ekki hluti af vinnunni að skýra þetta betur, af því að þegar allt kemur til alls þá er þetta í rauninni stærsti gallinn á lögunum sem er verið að uppfæra. Ástæðan fyrir því að gömlu lögin voru bara orðin algjört drasl er einmitt að örorkulífeyrinn uppfærðist ekki nær launaþróun. Upphæðirnar sem voru komnar samkvæmt þeim lögum voru því bara orðnar mun lægri í rauninni heldur en þær voru með tilliti til lágmarkslauna þegar lögin voru sett. Það munaði einhverjum 60% jafnvel. Ég er ekki komin með nákvæmt svar frá fjármála- og efnahagsráðherra enn þá en samkvæmt þeim útreikningum sem ég fékk frá rannsóknarskrifstofu þingsins, og er uppfært síðan, þá er það einhvers staðar í kringum 60% núna, jafnvel aðeins rétt rúmlega það. Af hverju var þetta ekki hluti af því að gera lögin skýrari og betri til að við þyrftum ekki alltaf að vera vesenast í þessari launagjá sem myndast út af þessum galla á skilningi um það hvernig launaþróun á að vera?