breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Herra forseti. Ég get ekki verið sammála hv. þingmanni um að það atriði sem hann nefnir hafi verið einn stærsti ágallinn á örorkulífeyriskerfinu, enda snýst það sem hv. þingmaður nefndi í raun um hækkanir samkvæmt fjárlögum en ekki um lög um almannatryggingar. Það sem er verið að gera með þessum lögum er að sameina greiðsluflokka sem verður til þess að nálega allir sem fá greiðslur samkvæmt lögunum hækka, þó mest þau sem minnst fá. Það er raunar mjög fámennur hópur sem gæti lækkað. Það er fólk sem er með mjög háar tekjur eða lífeyristekjur og þarf kannski minnst á stuðningi hins opinbera að halda. Það er auðvitað um þetta sem frumvarpið snýst og svo að koma á fót hlutaörorkugreiðslum og virknistyrk með háum frítekjumörkum til að styðja við atvinnuþátttöku fólks. Mér finnst bara mikilvægt að hafa það í huga að við erum hér að ræða um breytingar á almannatryggingalögunum og það (Forseti hringir.) skiptir máli að kerfið þar sé gagnsætt til að allir viti á hverju þeir eiga rétt ef þeir eru inni í kerfinu.
(Forseti (ÁsF): Ég minni þingmanninn á ræðutímann. Hann er tvær mínútur.)